Search
Close this search box.

Ágengar framandi lífverur

Ágengar framandi lífverur

Stutta svarið

Ágengar framandi tegundir eru lífverur sem fluttar voru inn af mannavöldum og valda innlenda lífríkinu skaða. Flestar eiga það sameiginlegt að fjölga sér hratt, lifa á fjölbreyttu fæði eða við fjölbreyttar aðstæður. Ágengar framandi lífverur eru ein af fimm helstu ógnum í heiminum við lífbreytileika.

Langt svar

Þegar lífvera er flutt af mannavöldum inn á nýtt svæði er hún kölluð framandi lífvera og ef hún skaðar lífríkið sem þar er fyrir þá er hún orðin framandi ágeng lífvera. Einkenni ágengra framandi lífvera eru m.a. að þær fjölga sér hratt og þær geta lifað á mjög fjölbreyttu fæði eða við fjölbreyttar aðstæður. Minkur, lúpína og skógarkerfill eru dæmi um ágengar framandi tegundir á Íslandi.

Tófa og holtasóley er dæmi um innlendar tegundir sem voru á Íslandi áður en maðurinn kom. Alaskalúpína, skógarkerfill og minkur eru dæmi um framandi tegundir sem maðurinn flutti til landsins og þessar tegundir eru þar að auki ágengar. Alaskalúpína myndar sambýli við örverur í rótunum sem vinna næringarefnið nitur úr andrúmslofti. Alaskalúpínan myndar þéttar breiður, breytir eiginleikum jarðvegs og gjörbreytir gróðurfari, m.a. þrengir það mjög að eða jafnvel útrýmir lyngi og öðrum lágvaxnari gróðri á tilteknu svæði. Skógarkerfill vex hratt, myndar stórar breiður og skyggir á annan gróður. Hann er hávaxnari en lúpínan og nær meira að segja að vaxa inn í lúpínubreiður.

Minkur er alæta sem fjölgar sér hratt og hefur haft mikil áhrif á fugla og útbreiðslu þeirra á Íslandi. Þessir eiginleikar lúpínu, skógarkerfils og minks hjálpar þeim að breiðast út, sem getur valdið lífríkinu skaða. Það verða samt alls ekki allar framandi tegundir ágengar, t.d. eru túlípanar og stjúpur framandi plöntutegundir á Íslandi en þær eru ekki þekktar fyrir að vera ágengar og henta því ágætlega í garðrækt.

Dæmi um framandi ágengar tegundir erlendis eru kanínur m.a. í Ástralíu, gráíkornar í Evrópu og sebraskeljar og vatnaplantan vatnapest víða í heiminum. Pöndur eru dæmi um lífveru sem hefur engin einkenni ágengra lífvera, þær fjölga sér mjög hægt og éta aðallega bambus.

Sjá einnig: Innlendar tegundir, lífbreytileiki, tap á lífbreytileika

 

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2024 Vefsíðugerð: webdew.is